Mynd af Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands

Rannsóknir

Í Seðlabankanum fer fram margvísleg rannsóknarstarfsemi sem tengist viðfangsefnum bankans. Hún hefur hingað til farið aðallega fram innan hagfræðisviðs bankans en aukin áhersla er á rannsóknir innan fjármálasviðs. Einnig kemur fyrir að Seðlabankinn kaupi eða styrki rannsóknarverkefni aðila utan bankans.

Meðal viðfangsefna ársins 2007 má nefna áframhaldandi vinnu við nýtt þjóðhagslíkan bankans og undirbúning að þróun nýs heildarjafnvægislíkans, rannsókn á áhrifum kerfisbreytinga á innlendum húsnæðismarkaði, þróun vísbendingarlíkans fyrir innlenda hagsveiflu, rannsókn á framboðshlið lítilla ný-keynesískra heildarjafnvægislíkana og þróun nýrra gengisvoga fyrir íslensku krónuna.

Meðal helstu rannsóknarverkefna sem eru í gangi eða hófust á árinu má nefna mat á Bayesísku-spálíkani fyrir innlenda verðbólgu, mat á vaxtarófi innlendra vaxta, mat á einföldu spákerfi fyrir eftirspurn og verðbólgu og mat á margvíðu tímaraðalíkani fyrir innlendar hátíðnivísbendingar, gerð hermilíkans af íslenska fjármálakerfinu og mat á væntu og óvæntu útlánatapi viðskiptabanka. Þá hófst á árinu vinna við viðamikið rannsóknarverkefni um sérstök viðfangsefni peningastefnunnar í mjög litlum opnum hagkerfum með sjálfstætt fljótandi gjaldmiðil.

Að auki eru iðulega í gangi fjöldi smærri rannsóknarverkefni. Má þar nefna þróun á skammtímaspálíkönum fyrir undirliði vísitölu neysluverðs, mat á áhrifum erlends vinnuafls á íslenskt hagkerfi, mat á hagsveifluleiðréttingu opinberra fjármála, þróun vísbendinga fyrir húsnæðismarkað og íbúðafjárfestingu, samanburðarrannsókn á sveiflum í tekjum og neyslu, rannsókn á uppruna, samsetningu og fjármögnun viðskiptahallans og mat á upplýsingagildi fyrstu bráðabirgðatalna þjóðhagsreikninga.

Að lokum má nefna ýmiss langtímaverkefni sem hafa verið í gangi um tíma, oft í samstarfi við innlenda og erlenda fræðimenn. Má þar nefna þróun á aðferðum við mat á framleiðsluspennu, rannsókn á innlendum raunvöxtum og rannsókn á breytingum á sambandi verðbólgu og gengis krónunnar og þróun álagsprófa fyrir fjármálakerfið. 

VerðbólgaMeira »

Vísitala neysluverðs, 12 mánaða breyting. Síðasta gildi: 4,5%
Verðbólgumarkmið er 2,5%

Vextir SeðlabankansMeira »
Vextir Seðlabankans
Daglán 8,50%
Veðlán 7,00%
Viðskiptareikningar innlánsstofnana 5,50%
Gengi gjaldmiðlaMeira »
Gjaldmiðill 8.9.2010 Br. *
USDBandaríkjadalur 118,46 0,19%
GBPSterlingspund 183,08 0,73%
DKKDönsk króna 20,22 -0,16%
EUREvra 150,54 -0,13%
* Breyting frá síðustu skráningu
GengisvísitölurMeira »
Gengisvísitölur 8.9.2010 Br. *
Viðskiptavog þröng** 204,99 0,05%
* Breyting frá síðustu skráningu
** Vísitalan hefur verið endurreiknuð þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar sem Seðlabankinn hefur hætt að reikna.
Aðrir vextirMeira »
Aðrir vextir
Dráttarvextir frá 1.9.2010 14,00%
08.09.10 REIBID REIBOR
O/N 5,500% 6,000%
S/W 5,500% 6,000%
1 M 5,800% 6,300%
3 M 5,400% 5,900%
1 Y 4,600% 5,100%


© 2005 Seðlabanki Íslands - Öll réttindi áskilin
Póstfang: Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavik - Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Sími: 569 9600 - Bréfasími: 569 9605

Prentvæn útgáfa

Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli