Mynd af Seðlabanka Íslands
Seðlabanki Íslands

Greiðslukerfi

Mikilvægi greiðslukerfa og verðbréfauppgjörskerfa fyrir fjármálastöðugleika.

Samkvæmt 4. gr. laga um Seðlabanka Íslands skal bankinn stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi, þ.m.t. greiðslukerfi í landinu og við útlönd. Greiðslukerfi og verðbréfauppgjörskerfi eru mikilvægur þáttur í fjármálakerfinu og því einkar mikilvægt að tryggja virka og örugga starfsemi þeirra. Er þetta í samræmi við erlendar fyrirmyndir enda gegna seðlabankar víðast hvar þýðingarmiklu hlutverki í greiðslu- og verðbréfauppgjörskerfum landa sinna.

Hér á landi eru nú tvenns konar greiðslukerfi sem jafnframt eru uppgjörskerfi, þ.e. stórgreiðslukerfi Seðlabankans og jöfnunarkerfi Fjölgreiðslumiðlunar hf. (FGM). Uppgjör vegna verðbréfaviðskipta fer jafnframt fram í gegnum fyrrnefnda kerfið. Þátttakendur í kerfunum eru viðskiptabankar, sparisjóðir og Seðlabankinn. Reiknistofa bankanna (RB) sinnir hugbúnaðarþjónustu fyrir öll kerfin en Seðlabankinn hefur milligöngu um uppgjör í þeim.

Seðlabanki Íslands hefur mikilvægu hlutverki að gegna í því að stuðla að öruggum og skilvirkum greiðslukerfum hér á landi. Sama á við um verðbréfauppgjörskerfi. Greina má þetta hlutverk í eftirfarandi þætti: Mótun stefnu varðandi þróun kerfanna (e. policy-making role), setningu reglna fyrir kerfið (e. regulatory role), stuðning við markaðslausnir og frumkvæði á þessu sviði (e. catalyst role), rekstur stórgreiðslukerfisins sem og uppgjör í jöfnunarkerfinu og í verðbréfauppgjörskerfinu (e. operational role) og eftirlit með kerfunum í samræmi við alþjóðlega staðla (e. oversight role). Þá á Seðlabankinn fulltrúa í stjórn fyrirtækja sem koma að framkvæmd greiðslu- og uppgjörsmála, þ.e. Reiknistofu bankanna (RB), Fjölgreiðslumiðlun hf. (FGM) og Eignarhaldsfélagsins Verðbréfaþings hf., þar sem unnið er að framgangi stefnu bankans á þessu sviði.

 

 

VerðbólgaMeira »

Vísitala neysluverðs, 12 mánaða breyting. Síðasta gildi: 6,5%
Verðbólgumarkmið er 2,5%

Vextir SeðlabankansMeira »
Vextir Seðlabankans
Daglán 5,75%
Veðlán 4,75%
Viðskiptareikningar innlánsstofnana 3,75%
Gengi gjaldmiðlaMeira »
Gjaldmiðill 27.1.2012 Br. *
USDBandaríkjadalur 123,04 0,33%
GBPSterlingspund 193,32 0,38%
DKKDönsk króna 21,76 0,19%
EUREvra 161,75 0,18%
* Breyting frá síðustu skráningu
GengisvísitölurMeira »
Gengisvísitölur 27.1.2012 Br. *
Viðskiptavog þröng** 221,75 0,27%
* Breyting frá síðustu skráningu
** Vísitalan hefur verið endurreiknuð þannig að 2. janúar 2009 taki hún sama gildi og vísitala gengisskráningar sem Seðlabankinn hefur hætt að reikna.
Aðrir vextirMeira »
Aðrir vextir
Dráttarvextir frá 1.1.2012 11,75%
27.01.12 REIBID REIBOR
O/N 3,850% 4,100%
S/W 4,250% 4,500%
1 M 4,300% 4,800%
3 M 4,300% 4,800%
1 Y 4,350% 4,850%


© 2005 Seðlabanki Íslands - Öll réttindi áskilin
Póstfang: Kalkofnsvegi 1, 150 Reykjavik - Netfang: sedlabanki@sedlabanki.is
Sími: 569 9600 - Bréfasími: 569 9605

Prentvæn útgáfa

Leturstærðir

Byggir á LiSA vefumsjónarkerfi frá Eskli